Þjálfarar
Þú ættir að:
- Meðhöndlaða alla iðkendur á einstaklingsgrunni og á þeirra eigin forsendum. Hafa ber í huga að þú ert að byggja upp fólk, bæði líkamlega og andlega.
- Styrktu jákvæða hegðun, framkomu og gagnrýni. Byggðu upp á jákvæðan hátt.
- Sjáðu til þess að þjálfun og keppni sé við hæfi iðkenda með tilliti til aldurs, reynslu og hæfileika.
- Haltu á lofti heiðarleika innan íþróttarinnar.
- Viðurkenndu og sýndu virðingu þeim ákvörðunum sem dómarar taka.
- Fáðu iðkendur til að vera með í ákvörðunum sem tengjast þeim. Kenndu þeim að bera ábyrgð á eigin hegðun og framförum í íþróttinni.
- Vertu jákvæður, réttlátur, umhyggjusamur og heiðarlegur gagnvart iðkendum þínum.
- Settu ávallt á oddinn heilsu og heilbrigði iðkenda þinna og varastu að setja þá í aðstöðu sem ógnað gæti heilbrigði þeirra.
- Talaðu alltaf gegn neyslu áfengis, tóbaks og notkunar ólöglegra lyfja.
- Sýndu athygli og umhyggju þeim iðkendum sem orðið hafa fyrir meiðslum.
- Leitaðu samstarfs við aðra þjálfara og sérfræðinga þegar þess þarf og viðurkenndu rétt iðkandans til að leita ráða frá öðrum þjálfurum.
- Samþykktu aldrei ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.
- Beittu aldrei kynferðislegri áreitni né vertu í nánu samband við iðkanda þinn.
- Taktu aldrei að þér akstur yngri iðkenda, hvorki á leiki né æfingar, nema með leyfi foreldra.
- Forðastu samskipti gegnum síma og Internetið nema til boðunar æfinga og upplýsingagjafar.
- Vertu meðvitaður um hlutverk þitt sem fyrirmynd, bæði utan vallar og innan.
- Komdu eins fram við alla iðkendur, óháð kyni, kynþætti, stjórnmálaskoðunum, trúarbrögðum og kynhneigð.
- Notfærðu þér aldrei aðstöðu þína sem þjálfari til að uppfylla eigin áhuga á kostnað iðkandans.
- Forðastu að koma þér í þá aðstöðu að vera einn með iðkanda nema um fyrir fram ákveðna æfingu sé að ræða.