Lög UMFG
1.gr.
Félagið heitir Ungmennafélag Grundarfjarðar, skammstafað UMFG eða UMF.Grundarfjarðar. Heimili þess og varnarþing er í Grundarfirði.
2. gr.
Tilgangur félagsins er:
a) að efla iðkun íþrótta og vinna að heilbrigðu, þroskandi og fjölbreyttu félagslífi.
b) að efla líkamsrækt og heilsueflingu með virkri þátttöku almennings á öllum aldri í íþrótta og félagsstarfi.
c) að vinna að forvörnum gegn tóbaksnotkun, neyslu áfengis og annara vímugjafa.
d) að tryggja drengskap og heiðarleika í íþróttakeppnum.
e) að vinna að markmiðum Ungmennafélags Íslands og Íþrótta og ólympíusambands Íslands.
3. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með að halda utan um íþróttaiðkun ungmenna í Grundarfirði, halda utan um ráðningar þjálfara í íþróttagreinum sem í boði eru og hvetja Grundfirsk ungmenni til þátttöku í íþróttastarfi sem og að iðka heilbrigðan lífsstíl. Einnig með fundarhöldum, námskeiðum, félagsstarfi og framkvæmdum þeim tengt.
4. gr.
Merki félagsins er skjaldarmerki, blátt, rautt og hvítt að lit. Efst í skildinum er skrifað UMFG með bláum hástöfum. Þar fyrir neðan Grundarfjörður með rauðum stöfum. Fyrir neðan það er mynd af Kirkjufelli í sama bláa lit með áletruninni 1933 í hvítum stöfum en það er stofnár félagsins. Undir Kirkjufellinu er kría í sama bláa litnum.
5. gr.
Aðallitir í keppnisbúningum félagsins skulu vera hvítur og blár í peysu en buxur bláar. Félagsmerki skal staðsett vinstra megin á barmi búnings. Aðalstjórn er heimilt að leyfa undantekningar s.s. að akualitum sé bætt við og ef keppt er undir merkjum samstarfs (sbr 16. grein). Hverri deild innan félagsins er heimilt að útfæra ofangreinda aðalliti á keppnis og æfingabúningum með samþykki stjórnar félagsins.
6. gr.
Félagsmaður getur hver sá orðið sem æskir þess og samþykkir að hlíta lögum og reglugerðum félagsins sem eru í gildi á hverjum tíma. Beiðni um aðild skal leggja fyrir stjórnarfund til samþykktar. Stjórn skal halda skrá yfir félaga.
7.gr.
Hver sá sem hyggst taka þátt í reglubundnum æfingum eða keppa á vegum félagsins eða fyrir hönd félagsins verður að vera skráður félagi.
8.gr.
Heimilt er að skrá styrktarfélaga sem eru undanþegnir þátttöku í störfum á vegum félagsins.
9. gr.
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi fyrir upphaf hvers skólaárs. Félagsgjald er innheimt þrisvar sinnum á ári eða á fjögurra mánaða fresti.
10. gr.
Stjórn félagsins er heimilt að veita félagsmanni tiltal, áminningu eða víkja honum úr félaginu hafi hann sannarlega í orði eða verki unnið gegn félaginu eða markmiðum þess og siðareglum. Áður skal siðanefnd skipuð af stjórn taka til meðferðar mál viðkomandi félagsmanns og leggja fram tillögur um aðgerðir til stjórnar ef þörf er á. Nefndinni er heimilt að taka upp mál að eigin frumkvæði eða eftir ábendingu stjórna einstakra deilda eða félagsmanna. Stjórn skal veita félagsmanni andmælarétt áður en tiltal, áminning, tímabundin brottvikning eða brottrekstur er ákvörðuð. Komi til brottvikningar eða brottrekstur getur félagsmaður skotið málum til aðalfundar félagsins.
11. gr.
Úrsögn úr félaginu skal tilkynnt til stjórnar þess. Ósk um félagaskipti skal berast skriflega til stjórnar félagsins og hljóta þar meirihlutafylgi til að vera samþykkt. Að öðru leiti fara félagaskipti fram skv. lögum sérsambanda sem um ræðir hverju sinni og UMFG er aðili að. Félagsmaður sem ekki hefur greitt árgjald (félagsgjald) til félagsins í tvö ár í röð skal ekki talinn félagsmaður eftir þann tíma.
12.gr.
Stjórn félagsins skipa fimm menn, formaður, gjaldkeri, ritari og tveir meðstjórnendur. Kjör þeirra fer fram á aðalfundi ár hvert. Einnig skal kjósa tvo varamenn til stjórnar. Meðstjórnandi 1 er fyrsti varamaður annara stjórnarmanna.
Meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála í stjórn félagsins, við jöfn atkvæði ræður atkvæði formanns. Stjórn félagsins er heimilt að skipa nefndir til starfa sem hún telur þörf á. Skylt er að halda stjórnarfundi minnst einu sinni á önn og skal halda gjörðabók um þá.
13.gr.
Félagið er deildarskipt eftir íþróttagreinum sem stundaðar eru á vegum þess og aldri (undir og yfir grunnskólaaldri). Hver deild félagsins hefur sér stjórn eða ráð. Stjórnir deilda/ráða skulu vera minnst þrír félagar, þ.e. formaður, gjaldkeri og ritari. Flestir skulu stjórnarmenn vera fimm. Bera skal val í stjórnir upp til samþykktar á aðalfundi félagsins.
14.gr.
Óskir um stofnun nýrra deilda skulu berast til stjórnar félagsins til samþykktar. Stjórn skal bera samþykki um stofnun deildar upp á aðalfundi.
15.gr.
Stjórn félagsins ásamt formönnum deilda mynda framkvæmdastjórn félagins. Framkvæmdastjórnarfundi skal halda minnst einu sinni á önn og skal halda sérstaka gjörðabók um þá. Á framkvæmdastjórnarfundum skulu stjórn og deildir gera grein fyrir starfi sínu og stöðu fjármála.
16.gr.
Aðalstjórn er heimilt að efna til samstarfs við önnur ungmenna- og/eða íþróttafélög varðandi þjálfun og keppnir í einstaka íþróttagreinum meti hún það svo að samstarfið sé félagsmönnum og félaginu til bóta. Skal það gert í samráði við viðkomandi deild.
17.gr.
Stjórnir deilda skulu vinna að eflingu íþróttagreina hver á sínu sviði. Aðalstjórn ásamt stjórnum deilda yngri flokka sjá um ráðningu þjálfara og annara til starfa fyrir yngriflokka deildir. Stjórnir deilda sjá um faglegan rekstur þeirra og skipuleggur ásamt þjálfara í hvaða mót skal stefnt á að fara, hvort og hvernig skal afla fjár til fararinnar o.s.fr. Aðalstjórn greiðir þjálfurum yngri flokka laun og aflar tekna til þeirra útgjalda með:
a) Æfingagjöldum.
b) Styrktarfélagsgjöldum.
c) Ágóða af íþróttamótum.
d) Öðrum tekjuöflunarleiðum.
Deildir meistaraflokka sjá um ráðningu þjálfara og annara til sinna starfa og greiða þeim laun. Deildum er heimilt að afla tekna með:
a) Æfingagjöldum.
b) Styrktarfélagsgjöldum.
c) Ágóða af íþróttamótum viðkomandi deildar.
d) Öðrum tekjuöflunarleiðum sem ekki rekast á við starf annara deilda.
Allir samningar sem innihalda fjárhagslegar bindingar til þjálfara, leikmanna eða starfsmanna skulu lagðir fyrir aðalstjórn til staðfestingar.
18.gr.
Óheimilt er að reka fjáraflanir í nafni UMFG eða í nafni samstarfsvettvangs sem UMFG er aðili að nema með leyfi stjórnar. Sá er hyggur á fjáröflun skal sækja um það skriflega til aðalstjórnar og láta koma fram fyrir hvaða deild sótt er um, fyrir hverju skal safnað, hvað skal gert/selt, hvar fjáröflunin skal fara fram og hvenær söfnunin fer fram (upphaf og endir). Þá skal koma fram hvernig fjármunum verði ráðstafað ef meira safnast heldur en þörf var á.
19.gr.
Hver deild skal halda gjörðabók um alla fundi, keppni og annað markvert sem fram fer innan deildarinnar. Í lok hvers starfsárs skal draga fram það sem markverðast var fyrir ársskýrslu félagsins. Stjórn félagsins tilkynnir um lokaskil á þessum skýrslum. Æskilegt er að hver deild setji reglulega inn myndir og fréttir af starfinu inn á heimasíðu félagsins umfg.123.is eða á samfélagsmiðla félagsins.
20.gr.
Stjórn félagsins ber að efla félagið á allan hátt og gæta hagsmuna þess í hvívetna. Stjórn félagsins sem fer með umboð félagsins milli aðalfunda hefur eftirfarandi meginverkefni.
- Hún hefur umráðarétt yfir öllum eignum félagsins og skal sjá um að allir sjóðir þess séu ávaxtaðir í banka eða sparisjóði.
- Kaup og sala fasteigna er bundin aðalfundarsamþykki.
- Hún ræður starfsemi félagsins í aðalatriðum og í samráði við deildir.
- Hún skal halda félagaskrá.
- Hún tekur ákvörðun um skiptingu sameiginlegra tekna félagsins.
- Hún hefur úrskurðarvald í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma innan félagsins.
- Hún sér um framkvæmd á félags- og árgjaldi.
- Hún sér um útgáfu á ársskýrslu félagsins.
- Hún hefur umsjón með útgáfu fréttablaðs, samfélagsmiðla félagsins og/eða heimasíðu þess.
- Hún sér um öll samskipti félagsins við bæjaryfirvöld og nefndir bæjarins.
- Hún sér um að útvega æfingatíma og niðurröðun á æfingum UMFG í Íþróttahúsi Grundarfjarðar.
- Stjórn félagsins er málsvari félagsins gagnvart HSH, UMFÍ, ÍSÍ og öðrum aðilum sem félagið á aðild að. Deildir félagsins skulu þó vera í beinum tengslum við viðkomandi sérsambönd.
21.gr.
Gjaldkeri félagsins fer með prókúru þess en formaður félagsins skal einnig hafa prókúru. Gjaldkerar deilda fara með prókúru viðkomandi deilda. Reikningsár félagsins er almanaksárið. Þar sem starfsár deilda er annað en reikningsárið skulu viðkomandi deildir skila milliuppgjöri um áramót en fullnaðaruppgjöri við lok starfsárs. Ársreikningar UMFG innihalda alla starfsemi þess, þ.e. stjórnar deilda. Hver deild skilar reikningum sínum uppsettum til gjaldkera stjórnar a.m.k. tveim vikum fyrir aðalfund. Gjaldkeri stjórnar gengur frá reikningum félagsins í heild, uppsettum í hendur skoðunarmanna reikninga a.m.k. viku fyrir aðalfund.
22.gr.
Aðalfundur félagsins skal haldinn eigi síðar en 15. maí ár hvert og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannarlegum hætti. Aðalfundur er löglegur sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Rétt til setu á aðalfundi með málfrelsi og tillögurétt hafa allir skuldlausir félagar. Kjörgengi til aðalfundar og stjórnarstarfa hafa skuldlausir félagar er verða 16 ára á árinu og eldri. Atkvæði á aðalfundi hafa skuldlausir félagar er verða 15 ára á árinu og eldri. Tillögur til breytinga á lögum félagsins skulu berast stjórn félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund og skulu þær undirritaðar af flytjendum.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Kosning funarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Lagabreytingar
4. Reikningar lagðir fram til samþykktar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar
7. Önnur mál
23.gr.
Stjórn félagsins setur reglugerðir um val á íþróttamanni ársins, um viðurkenningar á vegum félagsins s.s. heiðursfélaga og aðrar þær reglugerðir sem þurfa þykir til nánari útlistinga á lögum þessum. Reglugerðir skal bera upp á aðalfundi til samþykktar.
24.gr.
Ákvörðun um slit félags verður tekin á aðalfundi með einföldum meirihluta og renna eignir þess til félaga sem starfa í svipuðum tilgangi.
Markmið áhugamannafélaga er ekki að afla félagsmönnum eigna og samrýmist það því ekki tilgangi slíks félags að ráðstöfun eigna við slit þess sé til félagsmanna sjálfra.
25.gr.
Aga- og siðanefnd félagsins er tilnefnd á aðalfundi félagsins til eins árs í senn. Hún skal skipuð formanni ásamt 4 öðrum aðilum, tveimur af hvoru kyni sem ekki eru tengdir stjórnum félagsins. Kjósa skal um tvo varamenn, einn af hvoru kyni. Komi upp mál sem vísað er til nefndarinnar hefur formaður og stjórn viðkomandi deildar sem málið tengist rétt á að koma á fund með aga- og siðanefnd og koma skoðunum þeirra á framfæri. Hvorki formaður né stjórnarmenn skulu sitja fund þar sem endanleg niðurstaða er rædd og tekin. Við meðferð máls er nefndinni heimilt að leita sér upplýsinga eða aðstoðar utan félagsins um hvað eina sem má verða til að upplýsa um málavexti. Nefndin skal hafa siðareglur félagsins til hliðsjónar þegar mál eru tekin fyrir. Aðila skal ávallt gefinn kostur á að koma að sínu sjónarmiði áður en mál er tekið til afgreiðslu.
26.gr.
Lögum þessum er ekki hægt að breyta nema á aðalfundi félagsins. Þau öðlast þegar gildi og eru eldri lög félagsins þá fallin úr gildi.
Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi 25.01.2018