Eldri iðkendur
Þú ættir að:
- Hafa heilbrigði alltaf að leiðarljósi. Forðast að taka áhættu varðandi heilsu þína með því að neyta ólöglegra lyfja til að bæta árangur þinn.
- Bera virðingu fyrir hæfileikum og getu annarra. Forðast neikvæð ummæli og skammir óháð kyni, kynþætti, stjórnmálaskoðunum, trúarbrögðum og kynhneigð
- Vera heiðarlegur og opinn í samvinnu við þjálfara og aðra sem styðja þig.
- Taka sjálfur höfuðábyrgð á framförum þínum og þroska.
- Vera ávallt til fyrirmyndar varðandi framkomu og hafa ávallt hugfast að þú er fyrirmynd yngri iðkenda jafnt utan vallar sem innan.
- Samþykkja aldrei eða sýna ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.
- Forðast náin samskipti við þjálfara þinn.
- Sýna ávallt öðrum virðingu, jafnt í meðbyr sem mótbyr.