Siðareglur UMFG
Markmið félagsins með siðareglum er að veita félagsmönnum sínum almennar leiðbeiningar í leik og starfi. Þær eru hluti af þeim anda sem á að vera ríkjandi í félaginu og þurfa að njóta almenns stuðnings meðal félagsmanna. Siðareglurnar skulu vera hvetjandi og leiðbeinandi í senn og skal kynna öllum félagsmönnum. Reglurnar eru ekki eingöngu leiðbeinandi heldur getur brot á þeim haft í för með sér refsingu, allt eftir alvarleika brots.